sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. --- Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég, eins og aðrir hv. þingmenn, fagna því að hér skuli vera teknar til umræðu sóttvarnaaðgerðir sem í gildi eru og hvet hæstv. ráðherra til að eiga þetta samtal við þingið í upphafi eða í lok hverrar viku svo lengi sem sóttvarnaaðgerðir eru í gildi hér. Ég vil hins vegar höggva aðeins í þau ummæli hæstv. ráðherra sem hún viðhafði í andsvari við aðra hv. þingmenn, með vísun til þess að þingið sé málstofa og það sé fagnaðarefni að þingið sé til umræðu. Ég vil í því sambandi benda á að þingið er miklu meira en málstofa í þeim skilningi sem hæstv. ráðherra virðist leggja í það, að það sé bara til að taka mál til umræðu. Þingið hefur hlutverki að gegna, þingið er löggjafinn í landinu, æðsta stofnun stjórnskipunar Íslands, og hefur bæði löggjafar- og eftirlitshlutverki að gegna gagnvart framkvæmdarvaldinu. Í því ljósi er mikilvægt að sóttvarnaaðgerðir komi ekki bara til umræðu á Alþingi heldur einnig til ákvörðunar.
Nú er í gildi reglugerð nr. 1051/2020 sem undirrituð var 30. október og gildir til 17. nóvember. Það má held ég fullyrða að í þessari reglugerð sé kveðið á um aðgerðir svo áhrifamiklar og víðtækar og inngrip inn í friðhelgi einkalífsins og persónuréttindi manna að annað eins hefur ekki þekkst, ekki bara í lýðveldissögunni heldur jafnvel í Íslandssögunni allri. Í því ljósi hefur líka komið fram að einhver upplýsingaóreiða virðist vera og almannavarnir eru að gefa út reglur sem jafnvel taka þessari reglugerð fram. Þess vegna vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort hún telji það ekki óheppilegt að hér hafi verið einhver upplýsingaóreiða í þessum efnum og hvort það sé heppilegt eða jafnvel eðlilegt (Forseti hringir.) að það sé verið að framfylgja reglum almannavarna sem eru umfram það sem kveðið er á um í þessari reglugerð.