151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[11:38]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Mér þykir leitt ef hv. þingmaður missti af því þegar ég var að ræða um hlutverk Alþingis. Ég gat þess sérstaklega í mínum orðum, sem hv. þingmaður virðist hafa misst af, að það væri mikilvægt að halda málstofuhlutverki Alþingis til haga til viðbótar við löggjafarhlutverkið og sitt mikilvæga eftirlitshlutverk. Ég geri mér grein fyrir því að hv. þingmaður er viljugur til að halda hlutverki Alþingis til haga og þá vil ég líka að það sé rétt eftir mér haft í þeirri umræðu.

Hv. þingmaður veltir því upp, varðandi þær aðgerðir sem eru núna í gildi, að þær séu harðar og þær hörðustu sem við höfum séð. Ég er sammála þeirri skoðun og þeirri afstöðu, enda liggur hún í sjálfu sér fyrir í aðgerðunum sem slíkum. En það liggur líka fyrir, í úttekt Páls Hreinssonar, að við hvílum á mjög skýrri lagastoð í þeim ákvörðunum sem við erum að taka, svo lengi sem við gætum jafnræðis og meðalhófs. Það er það sem við höfum gert í þessum aðgerðum allar götur og munum gera áfram. Ég minni á að lýðræðisríki í löndunum í kringum okkur, eins og Bretland núna síðast, eru að leggja til allsherjarlokun til margra vikna. Það er leið sem við höfum ekki farið.

Hv. þingmaður spyr sérstaklega um það þegar almannavarnir ganga lengra í sínum ákvörðunum eða tilmælum. Það hefur gerst nokkrum sinnum að slíkar ákvarðanir eru teknar af almannavarnanefndum tiltekinna svæða. Slíkar ákvarðanir hvíla bæði á lögum og heimildum. Það liggur auðvitað fyrir í samskiptum milli aðila sem þar um ræðir að kallað er eftir mikilvægi slíkra ráðstafana (Forseti hringir.) en það fellur ekki undir sóttvarnalög og er ekki hluti af mínum ákvörðunum.