sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Vitaskuld tel ég að reglugerð sem ég hef undirritað sjálf standist lög og stjórnskipan Íslands. Skárra væri það nú, virðulegur forseti. Ég vil minna hv. þingmann á að það er almannavarnaástand á Íslandi og hefur varað núna um nokkurra mánaða skeið. Ég vil skilja þá spurningu eftir hjá hv. þingmanni, sem lætur að því liggja og hefur rætt það bæði í fjölmiðlum, í greinum og annars staðar og núna síðast í þingsal að við förum hér vill vegar í því hvernig við erum að bregðast við kórónuveirunni, og ég vil biðja hv. þingmann um að leggja lykkju á leið sína í þingsal einhvern góðan veðurdag, einmitt í málstofuhlutverkinu, að deila með okkur hinum sjónarmiðum sínum að því er varðar það hvernig á að taka á málinu. Hvað er það sem hv. þingmaður leggur til? Það hefur aldrei komið fram. Leggur hv. þingmaður (Forseti hringir.) til að við förum ekki að ráðum sóttvarnalæknis í glímunni við Covid-19? Og hvað er það þá sem hv. þingmaður leggur til í þeim efnum? Það dugar nefnilega ekki að tala bara á móti einhverju. Maður ber ábyrgð hérna í þessum þingsal sem hv. þingmaður. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)