151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[11:44]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Forseti. Veiran er hápólitísk og við skiptumst í fylkingar um það hvort við teljum að takast eigi á við hana með aðferðum sóttvarna og hvort við eigum að beita almannavaldinu, hvort samfélagið eigi að beita þeim úrræðum sem það hefur til að halda niðri þeim faraldri sem er í gangi eða hvort við teljum að réttur hins smitaða sé ótvíræður og rétturinn til að smita aðra sé hærri en rétturinn til að ganga um heilbrigður og smitast ekki. Um þetta er tekist á og svo eru til þeir sem líta svo á að ríkisvaldið sé í eðli sínu andstætt borgurunum, að það berjist gegn þeim og að það beri að varast.

Ég kem þó ekki upp til að ræða þetta á þessum heimspekilegu nótum — ég fór að hugsa þetta meðan ég var að hlusta hér á orðaskipti — heldur langar mig að tala aðeins um skólamálin. Sóttvarnaráðstafanir komu fram síðastliðinn föstudag þar sem skólum var gert að breyta mjög sínum starfsháttum og vinnulagi og óneitanlega var hér um að ræða ansi stuttan fyrirvara. Þeir hafa þarna mánudaginn sem starfsdag svo á þriðjudaginn þurfa þeir að vera með allt klárt. Þetta var ansi stuttur fyrirvari og því langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún hafi gert þetta í samráði við hæstv. menntamálaráðherra sem hafi þá getað gert skólunum betur viðvart.

Mig langar hreinlega að spyrja: Hvenær kynnti hæstv. ráðherra hæstv. menntamálaráðherra þessar ráðstafanir?