151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[11:46]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og ekki síst heimspekilegu vangavelturnar af því að þetta er náttúrlega ástand sem kallar mjög á heimspekilegar vangaveltur af því að fordæmalausir tímar eru einmitt slíkir tímar að vangaveltur af því tagi vakna.

Það er þannig og hefur verið allar götur frá því að faraldurinn tók hér land að við erum í raun og veru með tvær reglugerðir. Þær eru báðar undirritaðar af heilbrigðisráðherra. Annars vegar er almenn reglugerð um sóttvarnaráðstafanir þar sem við tiltökum fjölda- og fjarlægðartakmörkun og hvað megi vera margir hér og hve margir þar. Hins vegar er önnur reglugerð sem byggist á sömu lögum en heitir reglugerð um takmörkun á skólastarfi. Ástæðan fyrir því að þetta er aðskilið er eðli starfseminnar þannig að þetta hafa alltaf verið tvær reglugerðir. Alla jafna hafa þær verið lagðar fram samhliða. Að þessu sinni var það ekki unnt vegna þess að samráðið hafði ekki átt sér stað við skólayfirvöld þannig að við fórum þá leið að ég kynnti almennu ráðstafanirnar í ríkisstjórn á föstudag fyrir viku. Þar er menntamálaráðherra upplýstur og hafði raunar verið upplýstur áður um það hvað væri í pípunum. Á þeim ríkisstjórnarfundi sammæltumst við um að hefja samstarf milli heilbrigðisráðuneytis, menntamálaráðuneytis og Sambands sveitarfélaga og þeirra sem þurfa í raun og veru að vinna samkvæmt reglugerðinni. Við töldum að helgin myndi duga til að eiga það samráð og það var auðvitað fyrst og fremst á forræði og hendi menntamálaráðherra að gera það. Þetta er óvenjulegt út frá stjórnskipaninni vegna þess að samráðið er þeim megin þó að það sé síðan mitt verkefni að skrifa undir reglugerðirnar. Það tók lengri tíma en ég hefði viljað og mér fannst óheppilegt að það skyldi (Forseti hringir.) ekki nást að klára það fyrr. Það var sannarlega markmiðið að klára það fyrr (Forseti hringir.) á sunnudeginum. En þetta varð niðurstaðan og var algerlega í (Forseti hringir.) samráði við menntamálaráðherra í hverju skrefi.