sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar. Í framhaldinu langar mig að vekja máls á því að borið hefur á óánægju meðal grunnskólakennara varðandi þessar ráðstafanir allar og þeir hafa ályktað og lýst yfir óánægju sinni og mér finnst það áhyggjuefni þegar slík framlínustétt er ekki sátt við það hvernig starfi hennar skuli háttað. Mig langar í framhaldinu að spyrja hæstv. ráðherra hvort ekki hefði verið hægt að hafa meira samráð við kennarana, við kennarasamtökin, og hvort ekki verði reynt í framtíðinni að búa svo um hnútana að það samráð verði viðhaft.