sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Eins og ég rakti í fyrra svari mínu voru þau samskipti og samráð á hendi menntamálaráðuneytisins og voru kannski fyrst og fremst við sveitarfélögin sem það stjórnvald sem fer með leik- og grunnskóla, þetta skiptir mjög miklu máli, en ekki síður samstarf við forystu bæði skólastjóra og kennara á öllum skólastigum þannig að haldnir voru fundir og ég veit að menntamálaráðherra hefur lagt sig í líma við að eiga í mjög þéttu samstarfi og samráði við skólameistara og við þá sem með skólana fara. Ég átta mig algerlega á því að svona miklar hömlur á skólastarfi, og þá er ég t.d. að tala um grímuskyldu á 11 ára börn, verða aldrei lagðar öðruvísi en að fólk setji spurningarmerki við slíkt. Það sem ég myndi vilja sjá og vona er að þessar þröngu ráðstafanir vari sem allra styst (Forseti hringir.) og ekki síður að við getum farið að liðka fyrir, sérstaklega varðandi íþróttastarf fyrir börn.