151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[11:51]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu og vil segja að heilt yfir hefur þessi barátta við kórónuheimsfaraldurinn gengið vel hjá þjóðinni. Stjórnvöld hafa látið heilbrigðisyfirvöld vísa veginn og stillt saman strengi við tillögur sóttvarnalæknis í reglugerðum hverju sinni. En það vakna upp spurningar um hvort gildandi valdheimildir gagnvart sóttvarnaráðstöfunum séu nægar sem og samspil við heimildir lögreglu og annarra yfirvalda til að framfylgja þeim, eins og komið hefur fram í umræðunni. Við vitum að von er á frumvarpi þess efnis frá ráðherra og langar mig til að spyrja hvort hæstv. ráðherra telji að við höfum verið á gráu svæði hvað varðar lagastoð fyrir þeim sóttvarnaaðgerðum sem þegar hefur verið gripið til og hver séu helstu álitaefnin í því sambandi.

Mig langar einnig að spyrja hvort virkt samstarf og samtal sé á milli heilbrigðisyfirvalda hér á landi við Norðurlöndin í baráttunni við veiruna og hvort við tökum, sem fámenn þjóð og dreifbýl, með öðrum hætti á þessum faraldri en stærri þjóðir og fjölmennari. Að lokum vil ég spyrja hvort það sé eitthvað sem gengur betur hjá okkur í ljósi þess að við erum fámenn þjóð í dreifbýlu landi.