sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég held að stuðningur við viðbrögð við þessari kórónuveiru, þessum heimsfaraldri, sé mikill í landi okkar. Meiri hluti þjóðarinnar treystir vel hvernig að málum hefur verið staðið og að heilbrigðisyfirvöld hafi látið fagþekkingu á þessu sviði, með sóttvarnalækni, landlækni og almannavarnir í fararbroddi, vísa veginn og treysti því að þarna sé verið að fara eftir því sem hægt er að gera hverju sinni með bestra manna yfirsýn. Ég tel að þannig þurfum við að halda áfram að vinna og treysti því að stjórnvöld geri það í góðu samráði áfram við fagaðila í þessum geira. (Forseti hringir.) Ég brýni ráðherra áfram til góðra starfa, eins og hún hefur sýnt okkur hingað til, í þeim erfiða faraldri sem við glímum við.