sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég vil bara þakka hv. þingmanni hvatninguna. Það er sannarlega þannig að maður veit ekki alltaf í stjórnmálum hvaða verkefni það eru sem reka á fjörur manns. Ég held að ekkert okkar hafi getað látið sér detta í hug í hvaða stöðu við værum núna. En mér finnst afar mikilvægt í þessu stóra verkefni að við sýnum úthald og þolgæði því að það eru kannski þeir eiginleikar sem skipta mestu máli, en ekki síður sveigjanleika og auðmýkt frammi fyrir því að við höfum aldrei gert þetta áður. Við getum ekki sótt okkur handbókina um það hvernig við ætlum að glíma við stóran heimsfaraldur. Við erum með undirbúning víða í kerfinu okkar í almannavörnunum. Við erum með heilbrigðiskerfið okkar og heilbrigðisstefnu og það er ýmislegt sem við finnum að við getum byggt á þar sem við höfum stoðir sem við getum treyst. En ekki síst höfum við getað treyst á íslenskan almenning sem hefur sýnt alveg ótrúlegan sveigjanleika og úthald í þessu erfiða verkefni.