151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:04]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Vegna þess sem hv. þingmaður segir í lokin, en hann er formaður hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, þá er það auðvitað mikilvægt, til að nefndin og þingið geti rækt sitt hlutverk gagnvart framkvæmdarvaldinu, að átta sig á forsendum ákvarðana. Sóttvarnalæknir hefur lagt fram skjal þar sem hann telur upp þau meginviðmið sem horft er til þegar teknar eru ákvarðanir. Ég myndi vilja, og ég veit að hv. þingmaður myndi helst vilja, að þetta væru bara einhverjir mælikvarðar sem maður gæti matað eitthvert forrit á og svo fengi maður ráðstafanirnar út hinum megin. En það er ekki alveg þannig. Það eru kannski 50 smit sem eru öll á einum stað, þá færðu þessa ákvörðun, eða 50 smit sem þú getur ekki tengt og eru úti um allt samfélag, þá færðu einhverja aðra ákvörðun. Þannig að þetta er alltaf samspil þessara þátta og sjónarmiða sem eru undir og þess vegna hefur sóttvarnalæknir svona dregið úr — því ég er sammála (Forseti hringir.) hv. þingmanni í því að það væri langbest og langskýrast að við værum með afgerandi mælaborð sem við gætum bara algerlega skilið hverju sinni, en (Forseti hringir.) sóttvarnalæknir hefur kennt mér það að þetta er flóknara en svo í hvert einasta skipti. (Forseti hringir.) En ég mun tryggja að hv. þingmaður fái þessar viðmiðanir í hendur.