sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að fagna að við skulum vera búin að koma föstu formi á umræðuna um sóttvarnaráðstafanir og að hún verði reglulega á dagskrá hér framvegis. Það er ljóst að ákvarðanir um sóttvarnaaðgerðir eru aldrei teknar af léttúð, en engu að síður er mikilvægt að við rýnum aðgerðirnar til gagns á hverjum tíma. Gleymum aldrei meginmarkmiðinu, að verja okkar viðkvæmustu hópa og tryggja virkt heilbrigðiskerfi. Í sjálfu sér eru aðgerðirnar á öllum tímum einfaldar; að forðast hópamyndun, forðast of mikla nánd, sérstaklega óskyldra og ótengdra aðila, og forðast smithættu af sameiginlegum snertiflötum. Þetta eru meginatriði aðgerðanna og hafa verið allan tímann. Smáatriðin í þessu hafa svo verið útfærð eftir stöðu faraldursins og sú útfærsla getur vafist fyrir okkur og orkað tvímælis.
Sóttvarnaaðgerðirnar hafa óhjákvæmilega áhrif á börn. Skólastarf raskast, börnin fá ekki að fara í íþróttir, tómstundir, hitta vini o.s.frv. Margt sem þeim er mikilvægt fellur niður. Börn hafa mismunandi bakland til að takast á við þessar aðstæður. Áhrifin á líðan þeirra geta þess vegna bæði verið jákvæð og neikvæð, þau geta verið jákvæð ef aðstæður leyfa, börn verja meiri tíma með fjölskyldum sínum við góðar aðstæður og jafnvel eru fleiri börn á heimilinu. Rannsóknir sem gerðar voru í kjölfar samkomubannsins síðastliðið vor gefa hins vegar vísbendingar um að börn og ungmenni í viðkvæmri stöðu hafi farið verr út úr samkomubanninu og skertu skólastarfi. Þar þurfa sóttvarnaaðgerðir þess vegna að vega á móti áhrifum á lýðheilsu þessara barna á hverjum tíma. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Styðja heilbrigðissjónarmið að leita skuli allra leiða til að halda rútínu barna og skólastarfi gangandi? Hvernig má huga að mótvægisaðgerðum, sérstaklega gagnvart þessum viðkvæmustu hópum, og hefur það verið gert?