sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Það er rétt sem fram kemur í máli hv. þingmanns, að það eru fjölmörg sjónarmið sem vega þarf saman. Það er kannski einna skýrast þegar við erum að tala annars vegar um líf og heilsu og hins vegar efnahagsleg áhrif. En þegar við erum farin að tala um samfélagsleg áhrif, lýðheilsuáhrif, áhrif á geðheilsu og daglegt líf fólks, þá erum við komin meira inn á skörun einstakra sjónarmiða frekar en að við séum á sitthvorum endanum með það.
Við höfum verið sammála um það í ríkisstjórninni, og ég hef verið innilega sammála hæstv. menntamálaráðherra um að það sé til mjög mikils að vinna að tryggja samfellu í skólastarfi. Það á við um öll skólastig, og ekkert frekar yngri en eldri því að allur aldur hefur sína sérstöðu. Krakkar í framhaldsskóla sem eru í brotthvarfshættu eru í enn þá meiri hættu í þessum kringumstæðum o.s.frv. Hins vegar er það þannig að þegar reglugerðin er gefin út af mér sem heilbrigðisráðherra þá get ég ekki teygt mig lengra en sem nemur því að ekki sé gengið á sóttvarnasjónarmið. Þannig að við þurfum alltaf að gæta að því þegar við vegum þessi sjónarmið saman, þ.e. sótt sóttvarnasjónarmiðin annars vegar og hins vegar önnur sjónarmið sem lúta að mikilvægi þess að krakkar haldi rútínu eða reglu í sínu daglega lífi, að við getum ekki teygt okkur lengra en sóttvarnasjónarmiðin leyfa okkur. Annars væri ég í raun og veru að byggja reglugerðina á öðrum sjónarmiðum en þeim sem mér er heimilt samkvæmt lögum. Ég vona að þetta skýri grunntóninn í því sem þarna er undir en fer svo í síðara andsvari yfir annað það sem hv. þingmaður spurði um.