151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:10]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra svarið. Það er gríðarlega mikilvægt að heyra þessa samstöðu um að halda rútínu barna gangandi. Það er magnað að fylgjast með skólafólki um land allt móta og útbúa raunhæfa umgjörð þannig að börn geti mætt í skólann, stundað nám og hitt félaga. En það sem ég velti fyrir mér, og leiðir beint af svörum ráðherra er: Getum við upplýst almenning og skólafólk, ekki síst börnin sjálf, betur um það sem vísindin vita og þekkja varðandi ungt fólk og börn og veiruna? Vitum við eitthvað meira um það í rauninni en við komum á framfæri og fellur þá undir sóttvarnasjónarmið? Hvaða aðgerðir skipta raunverulega mestu máli í sóttvörnum barna og fullorðinna sem með þeim starfa? Ef við getum kennt börnunum að passa sjálf upp á sóttvarnir sínar þá komumst við býsna langt. Eins og við kennum börnum í öðrum samskiptum er miklu auðveldara að stjórna eigin hegðun en að hafa áhyggjur af hegðun annarra.