151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:19]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Rétt eins og fram kom í máli mínu áðan erum við náttúrlega að byggja upp þekkingu jafnt og þétt eftir því sem faraldrinum vindur fram. Við hv. þingmaður höfum átt í orðaskiptum hér allt frá því að faraldurinn kom fyrst, um eðli hans og útbreiðslu o.s.frv. Eitt af því sem eru vaxandi áhyggjur af og vaxandi þungi í eru þessar óbeinu, heilsufarslegu afleiðingar sem eru m.a. fólgnar í því sem fólk upplifir nú og gengur í gegnum sem langvarandi áhrif, eins og þreyta, stoðkerfisverkir, öndunarörðugleikar o.s.frv. Og já, við erum að setja aukið fjármagn og aukinn stuðning í að fjölga endurhæfingarrýmum, t.d. til að koma sérstaklega til móts við þennan hóp. En um leið er mér kunnugt um að okkar bestu sérfræðingar eru að rannsaka þessi áhrif, þessar hliðarverkanir, og Ísland mun hafa töluvert fram að færa í þeim efnum eins og í öðru sem lýtur að heilbrigðiskerfinu.