151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:24]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (U):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra kærlega fyrir svarið og gott að heyra þennan vilja hjá báðum ráðherrum fyrir hönd þessa hóps sem getur svo sannarlega verið í viðkvæmri stöðu.

Í þessari umræðu hefur verið talað um upplýsingagjöf og mig langar að víkja aðeins að henni í seinna andsvari mínu. Það kannski kemur inn á hinar pólitísku hliðar upplýsingagjafarinnar vegna þess að ég vil árétta mikilvægi þess að ríkisstjórnin útskýri fyrir almenningi þegar hún ákveður að víkja frá tilmælum sóttvarnalæknis af hverju það er gert. Ríkisstjórnin verður að mínu mati og að mati fleira fólks sem ég hef heyrt í að upplýsa almenning af hverju ákvörðunartaka við pólitíska borðið er aðeins til hliðar við tilmæli sóttvarnalæknis og hvers vegna þær ákvarðanir eru teknar. Við höfum orðið vitni að því að þegar þetta stangast aðeins á eða ekki hefur alveg orðið sá samhljómur sem að flestu leyti hefur verið (Forseti hringir.) þá hefur kannski skort á það að útskýra hvers vegna (Forseti hringir.) þær ákvarðanir hafa verið teknar. Og það væri gott að heyra frá hæstv. heilbrigðisráðherra einmitt um þá upplýsingagjöf.