sóttvarnaráðstafanir, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Mig langaði aðeins að botna þetta með framhaldsskólana. Ég veit ekki hvort það hefur komið fram í máli menntamálaráðherra en hún á líka í reglulegu samráði við félag framhaldsskólanema og hefur lagt mjög mikið upp úr því.
Varðandi síðan athugasemd hv. þingmanns um að við mættum útskýra betur ákvarðanir þá tek ég undir það. Við þurfum bara að taka það til okkar ef það er ekki nægilega vel útskýrt hvað er á ferðinni og hvaða rök liggja að baki. Stundum eru það rök sem eru lögfræðilegs eðlis, snúast um jafnræði eða eitthvað slíkt. Það er óheppilegt ef það næst ekki í gegn af því að það veldur óróleika í samfélaginu ef það er tilfinning fyrir því að misræmi sé í ákvörðunum þannig að við höfum gert eins og við getum í að stilla saman strengi og munum halda því áfram.