151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

umræða um sóttvarnaráðstafanir.

[12:28]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa umræðu, en tek undir þau sjónarmið sem fram komu hjá hv. þm. Sigríði Á. Andersen varðandi þær takmarkanir sem eru á þessu formi hér og varðandi það að tilefni væri til að þau mál sem um ræðir væru tekin inn í formi þingmála sem fengju þá fulla umræðu í þinginu. Mér fannst tónninn í svörum ráðherra framan af ekki benda til þess að sérstaklega mikill áhugi væri á því að standa í miklum umræðum um þessi mál og ég vil frábiðja mér meldingar sem fólust í því að Miðflokkurinn hefði ekki kallað eftir umræðu um þessi mál. Ég get nú bara sagt fyrir sjálfan mig að ég kom inn á þetta mál bæði í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra og í sérstakri umræðu um Covid-viðbrögð. Ráðherra málaflokksins ræður auðvitað ekki á hvaða formi þingflokkur eða þingmenn taka mál (Forseti hringir.) upp í þinginu. Það getur verið í sérstökum umræðum, það getur verið í óundirbúnum fyrirspurnum eða störfum þingsins eftir atvikum.