151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

umræða um sóttvarnaráðstafanir.

[12:30]
Horfa

Forseti (Þorsteinn B Sæmundsson):

Áður en lengra er haldið vill forseti taka það fram að undir liðnum fundarstjórn forseta er yfirleitt ekki rætt um dagskrárliði sem lokið er. Þess utan verður forseti að játa á sig mistök vegna þess að hæstv. heilbrigðisráðherra átti eftir lokaorð sín í umræðunni. Ég vil því biðja hæstv. ráðherra að mæta í ræðustól og flytja lokaorð sín í þeirri umræðu sem hér hefur staðið yfir.