umræða um sóttvarnaráðstafanir.
Virðulegi forseti. Ég vil fyrir það fyrsta segja að mér finnst þessi tilraun hafa gefist ágætlega, þ.e. sú tilraun að fara þá leið að gefa skýrslu og að allir hafi tök á andsvari frekar en að fara þá leið sem við höfum í sérstakri umræðu, sem er svolítil einstefnuumræða. Þetta form gefur færi á skoðanaskiptum sem ég held að sé mjög mikilvægt. Ég vil líka geta þess sérstaklega í umræðunni að ég hef tekið vel í þá málaleitan forseta að slík umræða verði með reglubundnum hætti. Ég held að það gæti líka verið til góðs að fleiri ráðherrar væru til svara, sérstaklega að því er varðar þá þætti sem undir þá heyra, eins og til að mynda skólamálin, en ég hef svarað nokkrum spurningum sem lúta sérstaklega að þeim málaflokki.
Ég vil hins vegar segja varðandi umræðuna undir fundarstjórn forseta, að mér þykir afar leitt ef hv. þingmenn hafa numið einhvern tón hjá mér. En ég held að allir sem hafa uppi gagnrýni verði að vera viðbúnir því að þeim sé mætt. Það vil ég gera til að nálgast betur hið rétta í málinu. Ég held að það sé bara góð reynsla af þessari fyrstu tilraun okkar. Þetta er óvenjulegur dagskrárliður sem við erum að prófa hér í fyrsta sinn og ég er jafnframt tilbúin til umræðna um það hvort fólk telur að aðlaga þurfi þetta form með einhverju móti eða breyta því eða eitthvað slíkt, af því að ég held að það sé til góðs að eiga þessa umræðu.
Ég vil hins vegar árétta það hér alveg í lokin að fyrir sóttvarnaráðstöfunum sem gripið er til er skýr lagastoð. Þær byggja á sóttvarnalögum, þeim sem eru í gildi samkvæmt ákvörðun Alþingis. Það hefur því ekki þótt tilefni til að hér verði til sérstök þingmál um einstakar ákvarðanir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra, enda væri það væntanlega ekki til þess fallið að geta brugðist eins hratt við og við þurfum að geta gert þegar við erum að glíma við heimsfaraldur.