151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

umræða um sóttvarnaráðstafanir.

[12:33]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Ég vil ræða dagskrárliðinn sem er að ljúka, kannski ekki efni hans heldur dagskrárliðinn sjálfan. Mér finnst hann gagnlegur. Mér finnst gott að við gerum þetta. Dugir hann til þess að við fáum þær upplýsingar sem við þurfum til þess að sinna skyldum okkar hérna? Að sjálfsögðu ekki. Þetta er bara viðbót í safn sem stöðugt er hægt að bæta í, því að við þingmenn heyrum af mörgu í samfélaginu sem þarf kannski að laga sem við getum þá beint til þeirra ráðherra sem sinna sóttvörnum og annarra ráðherra eins og heilbrigðisráðherra og fleiri sem þurfa að sinna málaflokkum sínum í einhvers konar mótvægisaðgerðum o.s.frv. Við erum t.d. að víkja til hliðar alls konar réttindum fólks, t.d. til náms við hæfi sem sumir eru að tapa núna. Umræðan er því gagnleg. Við þurfum, eins og ég ræddi við hæstv. heilbrigðisráðherra áðan, að halda samtalinu áfram og fá að senda spurningar, af því að það er ekki hægt að gera undir þessum lið nema mjög takmarkað, og fá svör og ég þakka bara fyrir mjög góða viðleitni hæstv. ráðherra í því.

Varðandi þingmál: Eitt af því sem Páll Hreinsson nefndi var að það þarf að leggja fram lagafrumvarp til að gera (Forseti hringir.) ákveðnar lagfæringar og þær þarf að gera sem fyrst. (Gripið fram í: Það verður gert.) Það verður gert, segir ráðherra. (Forseti hringir.) Umboðsmaður hefur kallað eftir því og sagt stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að það þurfi að gera. (Forseti hringir.) Við þurfum bara að fá skýr svör og munum óska eftir því hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, gerðum það á síðasta fundi, að fá skýr svör um hvenær það verði.