umræða um sóttvarnaráðstafanir.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir það að við erum aðeins að þróa okkur hér á skrýtnum tímum. Þetta er dagskrárliður sem mér fannst gefast alveg ljómandi vel og mér fannst hæstv. ráðherra svara ákveðnum spurningum og skýra myndina aðeins betur. Mér fannst ráðherra ekki vera að kveinka sér undan gagnrýni en það breytir því ekki að ákveðin upplýsingaóreiða er í gangi og það þarf að laga. Ég veit að hæstv. ráðherra mun gera það og beita sér fyrir því. Ég fagna því að ráðherra er einmitt að draga fram að hún vill koma hér oftar og vera hér oftar að ræða þessi mál og ég held að það sé þannig sem við eigum að reyna að halda áfram að þróa þetta. Það er mér hins vegar umhugsunarefni, eftir stuttar ræður hér í dag, og ekki endilega þessu tengt, þetta yfirbragð og þau skilaboð sem mér finnst Sjálfstæðisflokkurinn til að mynda vera að senda í hverju málinu á fætur öðru. Það er eins og trumpisminn (Forseti hringir.) svífi hér yfir og sé að sækja inn í landið af allt of miklum krafti. Ég bara skil þetta ekki.