umræða um sóttvarnaráðstafanir.
Virðulegur forseti. Ég vil nú fyrst taka fram að ég lít ekki svo á að ég hafi í fyrri ræðu minni um fundarstjórn verið að halda áfram umræðu um málið. Ég mun ekki kveinka mér undan því að ráðherra bregðist við þegar spurningar eru settar fram, síður en svo. En það er þó á sama tíma þannig að ráðherra verður þá að svara þeim fáu spurningum sem lagðar eru fram. Bara sem dæmi þá tók hæstv. ráðherra, í þessu tiltekna máli, töluverðan hluta af ræðutíma sínum í að kalla eftir því hvaða sjónarmið sá sem hér stendur hefur sett fram í málinu en vék í engu að þeirri spurningu sem fram hafði verið lögð um það hvort til greina hafi komið að semja við einkaaðila um tilteknar aðgerðir til að létta á Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Ráðherra hefði verið í lófa lagið að svara þeirri spurningu í stað þess að fara í einhverjar vangaveltur um það hver sjónarmið þess sem hér stendur eru eða eru ekki.