151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

umræða um sóttvarnaráðstafanir.

[12:37]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Við erum alltaf að reyna að þróa okkur einhvern veginn áfram í umræðum og öðru slíku og ég held að þetta fyrirkomulag hafi alveg verið þess virði að prófa það, að blanda saman einhverjum sérstökum umræðum og óundirbúnum fyrirspurnatíma því stjórnarandstaðan hefur haldið því mjög til haga t.d. að missa ekki úr í óundirbúnum fyrirspurnum sem er mikilvægt. Þetta gefur samtal sem ég held að sé mikilvægt.

Það var rætt á fundi þingflokksformanna, bara svo því sé haldið til haga, það eru alveg hugmyndir um frekari sérstakar umræður ef það eru einhverjar sérstakar spurningar sem fólk vill fá svör við sem gætu kostað það að ráðherra þyrfti að afla sér enn frekari upplýsinga en mætti ætla í einhverjum hefðbundnum fyrirspurnartíma, af því að ráðherra á jú að vera búinn undir alla skapaða hluti, en þá væri það t.d. eitt af því sem við gætum gert. Það er parturinn af sérstöku umræðunni þannig að við gætum nýtt okkur það til þess að þróa þetta áfram með því að vera undirbúin og ráðherra þá (Forseti hringir.) enn frekar þannig að þetta nýtist okkur enn betur. Sóttvarnir eru þess eðlis (Forseti hringir.) að við þurfum að standa saman (Forseti hringir.) í þeim en ekki gera þær að einhverju hápólitísku efni.