biðlistar eftir úrræðum fyrir börn með geðheilbrigðisvandamál.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir þessa umræðu og ráðherranum fyrir góð svör hér áðan. Þetta er þörf og góð umræða, eins og hér hefur komið fram, því að velferð barna er meginverkefni samfélags. Framtíð okkar byggir á því að heilbrigðir einstaklingar vaxi úr grasi. Geðræn vandamál koma iðulega fram á barns- eða unglingsaldri og því er mikilvægt að grípa inn í strax og vanda verður vart og skima einnig fyrir vanda hjá áhættuhópum. Mig langar að nefna að SÁÁ hefur lagt aukna áherslu á þennan hóp á síðustu árum og þarf til þess aukinn stuðning okkar hér í þinginu þegar framlög lækka og eigin tekjur samtakanna, sem hafa staðið undir stórum hluta verkefna þeirra, lækka einnig.
Einn slíkur hópur sem SÁÁ hlúir að eru börn sem búa við fíknisjúkdóma. Börn sem eiga foreldra með áfengis- og/eða vímuefnavanda eru líklegri en önnur börn til að þróa með sér áfengis- og vímuefnavanda. Mikilvægt er að tryggja að börn í áhættuhópi fá aðgang að sérhæfðri þjónustu til að fyrirbyggja neyslu áfengis og annarra vímuefna hjá þeim í framtíðinni. Börn sem búa við fíknivanda eru líka líklegri til að eiga við geðrænan vanda. Þau upplifa meiri kvíða og depurð en börn sem ekki eru í sömu stöðu og þau. Mikilvægt er að veita þessum börnum sérhæfða sérfræðiþjónustu til að vinna úr þeim tilfinningum sem fylgja því álagi að eiga foreldra sem eru veikir af fíknisjúkdómi. Hjá SÁÁ er rekin slík sérfræðiþjónusta fyrir börn sem eiga foreldra, systkini eða nána fjölskyldumeðlimi sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að stríða. Sálfræðingar SÁÁ hafa þróað þetta úrræði og hafa 1.300 börn notið þessarar þjónustu frá tilkomu þess árið 2008. Heilbrigðisráðuneytið og Alþingi eiga að styðja við bakið á sérfræðiþjónustu sem sannað hefur gildi sitt og náð góðum árangri í vandasamri meðferð á geðsjúkdómum barna og unglinga. Takk fyrir þessa góðu umræðu.