151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

biðlistar eftir úrræðum fyrir börn með geðheilbrigðisvandamál.

[12:56]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa þörfu umræðu. Oft var þörf, nú er nauðsyn. Í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær kom fram að andleg vanlíðan barna og unglinga er að aukast vegna hertra Covid-aðgerða. Það er mjög mikilvægt að við séum vakandi fyrir þessari þróun. Óumdeilt er að félagslegi þátturinn er lífsnauðsynlegur börnum og unglingum og skiptir sköpum fyrir allan heilbrigðan þroska og undir núverandi kringumstæðum í samfélaginu, er snýr að sóttvarnaaðgerðum, er þessum þáttum augljóslega sniðinn þröngur stakkur.

Einkenni kvíða, þráhyggjuhugsanir, geta leitt til þunglyndis sem getur verið mjög alvarlegur sjúkdómur. Okkur ber að taka þetta mjög alvarlega. Mörg börn eru mjög útsett á þessum erfiðu tímum þegar heimilisofbeldi eykst og fíknivandi eykst sömuleiðis. Ljóst er að ef þessi tilhneiging heldur áfram að aukast mun aukin ásókn í þau úrræði sem fyrir eru í kerfinu leiða til lengri biðlista. Þessa löngu biðlista á barna- og unglingageðdeild er þó mögulega hægt að stytta með aukinni stigskiptingu þjónustunnar sem í boði er.

Hvað á ég við með því? Það sem við þurfum að sjá er öflugt stuðningskerfi í skólunum sem og öflugt stuðningskerfi á heilsugæslunni, auk spítalaúrræðisins sem fyrir er. Við þurfum að vinna að því að minnka álagið á efsta stigi kerfisins og við gerum það með öflugum forvörnum sem og meðferðarúrræðum í fyrstu og annarri línu. Við þurfum að sjá þessa hluti innbyggða í velferðarstrúktúr Íslands og þannig stytta biðlistana. Við erum líka í auknum mæli að sjá nýja nálgun þar sem komið er að einstaklingnum út frá líðan hans frekar en hegðun. Það er jákvæð þróun. Það hefur verið sagt, með leyfi forseta: „Nothing about me without me“, eða ekkert um mig án minnar aðkomu, (Forseti hringir.) og það er þróunin sem við þurfum öll að hjálpast að við að stuðla að.