151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

biðlistar eftir úrræðum fyrir börn með geðheilbrigðisvandamál.

[12:59]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa umræðu sem er mjög mikilvægt að við tökum hér í þingsal. Skammtímavanda varðandi biðlista á BUGL þarf að leysa, hvort sem hann er til kominn vegna Covid eða af öðrum orsökum. Ef fjármagn er vandinn þarf að bæta í. En ég efast samt um að það sé eini vandinn og efast um að það sé skynsamlegt að bæta við fjármagni án þess að skoða um leið hvort aðrar leiðir séu líklegri til að skila börnum sem nú eru á biðlista nauðsynlegri þjónustu. Hvaða áhrif á líka stórbætt geðheilbrigðisþjónustu innan heilsugæslunnar eftir að hafa þegar hún verður búin að slípast til? Ég velti líka fyrir mér, með þessa biðlista, hvort það geti hugsast að einhver af börnunum séu á biðlistum í gegnum fleiri en eitt af þeim kerfum sem sinna börnum, þau geta t.d. verið á biðlista í heilsugæslunni, í gegnum skólaþjónustuna og félagsþjónustuna. Svo megum við heldur ekki gleyma því að mörg börn njóta góðrar þjónustu meðan beðið er. Auðvitað ætti að vera tryggt að öll börn fengju góða þjónustu meðan beðið er.

Ef vandinn er skortur á starfsfólki þá velti ég fyrir mér hvort stofnanir geti unnið saman, stofnanir sem veita sérhæfða þjónustu; hvort hægt sé að búa til meiri samlegð og um leið að búa til betra starfsumhverfi sem laðar að færa sérfræðinga. Til lengri tíma bind ég miklar vonir við þá vinnu sem nú stendur yfir á vegum félags- og barnamálaráðherra við umbætur í málefnum barna og að þeim ætla ég að koma betur í seinni ræðu minni um málið.