151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

biðlistar eftir úrræðum fyrir börn með geðheilbrigðisvandamál.

[13:01]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Við vitum að aðgengi barna og ungmenna að geðheilbrigðisþjónustu er ekki nægilega gott. Við erum með allt of langan biðtíma eftir þessari mikilvægu þjónustu og það er óviðunandi og gengur hreinlega gegn lögbundnum skyldum ríkisins um velferðarþjónustu og gerir það að verkum um leið að velferð barna er stefnt í hættu. En það sem mestu máli skiptir núna er að stytta biðlista eftir þjónustu og þá er ég ekki bara að tala um nauðsynlegar greiningar á vegum ríkisins heldur ekki síður almennt um geðheilbrigðisþjónustuna sem slíka.

Í september kom fram að það væru 1.193 börn að bíða eftir sálfræðigreiningu eða meðferð. Fjölmennastur er listinn hjá Þroska- og hegðunarmiðstöðinni, þar sem börn bíða eftir greiningu, og á unglingageðdeild Landspítalans, sem við köllum alla jafna BUGL. Við vitum það, og það verður aldrei of oft sagt, að við þurfum að setja í forgang snemmtæka íhlutun og forvirkar aðgerðir þegar kemur að því að veita fólki, ekki síst börnum, nauðsynlega þjónustu. Við sjáum að kvíði er að aukast, greiningum er að fjölga og við sjáum að stúlkur, ekki síst, í grunnskólum eru að taka aukið magn af þunglyndislyfjum. Við þurfum að stuðla að því að úrræðin verði til staðar.

Um leið og ég fagna þessari umræðu þá verðum við líka að fá einhver skýr svör um það að hverju hún á að stuðla. Ég vil sjá það gerast að við getum bæði stytt biðlistana en líka farið í markvissar aðgerðir sem tengjast því að koma með úrræðin sjálf. Geðheilbrigði verður ekki aðskilið frá öðrum heilbrigðismálum. Rót vandans hjá fullorðnum einstaklingum liggur oft í ónógum stuðningi eða skilningi í æsku. Ræturnar liggja oft þar. (Forseti hringir.) Á það eigum við að setja fókusinn. Þangað eigum við að setja hann með það að markmiði (Forseti hringir.) að allir fái að blómstra í samfélagi okkar, auðvitað á sínum forsendum. (Forseti hringir.) Þannig viljum við hafa það, fjölbreytileikinn er alls konar.