151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

biðlistar eftir úrræðum fyrir börn með geðheilbrigðisvandamál.

[13:04]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U):

Herra forseti. Þetta er alltaf þörf umræða vegna þess að við viljum að þjónusta geðsviðs Landspítalans sé sem best. En umræðan er sérstaklega þörf núna vegna þess að við vitum, það þarf ekki spádómsgáfu til, að við stefnum í aukinn þunga á geðheilbrigðiskerfið á næstu misserum. Það ástand sem við erum að ganga í gegnum í dag mun að öllum líkindum leiða til erfiðleika hjá stórum hópum fólks og það fólk þurfum við að grípa.

Það sem ég myndi vilja hvetja ráðherra til að gera í þessu ástandi er að vera afl út fyrir sitt eigið ráðuneyti, að halda hinum ráðherrunum við efnið þegar kemur að því að útfæra aðgerðir sem sérstaklega ná til ungs fólks og barna þannig að hugað sé að andlegri líðan fólks við útfærslu aðgerða. Ég nefni hér eitt dæmi: Aðgerðir menntamálaráðuneytisins í þágu námsfólks. Ekki er búið að hækka grunnframfærslu námsmanna frá því sem stúdentar kölluðu eftir og auðvitað býr það til fjárhagsáhyggjur sem síðan geta brotist út í andlegum kvillum. Nú væri líka einboðið að breyta kröfum Menntasjóðs námsmanna um námsframvindu þannig að fólk eigi ekki viðurværi sitt undir því að skila fullu námi í ástandi þar sem er bara ansi erfitt að skila fullu námi. Félagsstofnun stúdenta steig slíkt skref fyrir nokkrum dögum, lækkaði kröfu um námsframvindu um helming til að stúdentar þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að missa húsnæðið ef þeim gengur illa í skóla.

Þá þurfum við hér á þingi líka að passa upp á að fjárlaganefnd fullfjármagni sálfræðiþjónustuna sem við samþykktum að fella undir Sjúkratryggingar hér í vor. Síðan mætti ráðherra heilbrigðismála ræða við menntamálaráðherra um það (Forseti hringir.) hvort það að fjölga sálfræðingum (Forseti hringir.) í heilsugæslu þurfi ekki að ná enn betur inn í grunnskólana þannig að það (Forseti hringir.) verði sálfræðingur starfandi þar eða (Forseti hringir.) félagsráðgjafi sem geti náð utan um sálfélagslega vandann sem eflaust verður ærinn á næstu misserum.