biðlistar eftir úrræðum fyrir börn með geðheilbrigðisvandamál.
Virðulegi forseti. Sjálfsvíg eru algengasta dánarorsök ungra íslenskra karlmanna. Þannig þarf það ekki að vera. Árið 2018 gaf embætti landlæknis út skýrslu um sjálfsskaða, sjálfsvígshugsanir og sjálfsvígstilraunir meðal ungs fólks í framhaldsskólum. Þar var farið yfir þróun mála frá árinu 2000. Þá sýndu niðurstöður að sterkustu sjálfstæðu áhættuþættir sjálfsvígstilrauna meðal ungs fólks í framhaldsskólum eru sjálfsvígstilraun vinar eða einhvers nákomins, þunglyndi, reiði, kynferðisofbeldi og fíknivandi. Ég veit að tillögur starfshóps hæstv. heilbrigðisráðherra, um aðgerðir til að fækka sjálfsvígum, eru í vinnslu hjá hennar ráðuneyti sem og í félagsmálaráðuneytinu en það þarf að klára að útfæra þessi mál og útfæra greiðsluþátttöku í sálfræðiþjónustunni, það góða mál sem samþykkt var hér í þinginu fyrir stuttu.
Í fyrra töpuðust 39 líf hérlendis vegna sjálfsvígs. Oft er um að ræða ungt fólk sem hefði haft góð tækifæri til þess að vinna úr vandamálunum hefði það lifað; 39 líf þar sem hæfileikar og tækifæri til að vinna sig út úr hlutunum töpuðust að eilífu.
Geðheilbrigðismál eru eitt allra stærsta heilbrigðisvandamálið sem við glímum við í dag. Veikindi heilans og hugans geta verið og eru oft á tíðum lífshættuleg. En það sama gildir um þau eins og fjölmarga aðra sjúkdóma að forvarnir eru oft öflugasta leiðin til þess að tækla viðfangsefnið. Ferdinand Jónsson læknir komst svo vel að orði fyrir nokkrum árum í tölu sinni um sjálfsvíg á árinu: „Sársaukinn fer hvergi og síst af öllu í einhverjar grafir, heldur magnast hann upp og dreifist á aðstandendur, vini og situr þar fastur.“
Forvarnir og snemmtæk inngrip eru í þessu samhengi alger lykilorð og með því að efla fyrstu og aðra línu í þrepakerfinu (Forseti hringir.) með öflugum forvörnum og meðferðarúrræðum minnkum við álagið á efsta stigi þjónustunnar og styttum sjálfkrafa biðlistana.