biðlistar eftir úrræðum fyrir börn með geðheilbrigðisvandamál.
Virðulegi forseti. Geðheilbrigðisþjónusta við börn verður ekki rædd án samhengis við aðra þjónustu sem samfélagið veitir börnum og foreldrum. Eins og ég kom inn á í fyrri ræðu minni bind ég miklar vonir við þá vinnu sem nú stendur yfir á vegum félags- og barnamálaráðherra við umbætur í málefnum barna. Sú vinna er m.a. unnin af þverpólitískri þingmannanefnd sem ég leiði og ætla ég að koma inn á nokkrar áherslur í þeirri vinnu. Þar er áherslan lögð á þjónustu við börn snemma á lífsleiðinni, mikil áhersla á samvinnu og samþættingu. Það að við skulum vera að ræða þennan vanda hér og nú er einmitt enn eitt ákallið um heildarsýn í þessum málum, ekki að hvert kerfi eða hver þjónustuaðili sé að vinna út af fyrir sig.
Í þessari vinnu er lögð áhersla á að öll þjónusta sem veitt verður á vegum ríkis og sveitarfélaga, og á þátt í að efla og tryggja farsæld og velferð barns, birtist börnum og fjölskyldum sem heildstæð þjónusta. Þá þurfi menntakerfið og heilbrigðiskerfið, sem snertir öll börn, að vinna vel saman ásamt kerfum eins og félagsþjónustu, löggæslu, þjónustu við fatlaða og ýmsum fleirum. Ég bind líka miklar vonir við að skýrari stigskipting þjónustu barna og samræming stigskiptingar milli kerfa geti tryggt börnum þjónustu við hæfi þar sem hennar er þörf og þegar hennar er þörf.
Í þessari vinnu er líka lögð áhersla á að öll börn og foreldrar þurfi að eiga aðgang að aðila sem getur aðstoðað þau við að fá viðeigandi þjónustu án hindrana. En gleymum því aldrei að öll þessi vinna snýst um að skapa börnum aðstæður til þess að þau geti vaxið og þroskast og fundið út hvernig þau geta stýrt sínu lífi á sem farsælastan hátt.