151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

biðlistar eftir úrræðum fyrir börn með geðheilbrigðisvandamál.

[13:20]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Herra forseti. Umræða um biðlista er þörf. Svo langt sem hún nær er hún af hinu góða en er kannski takmörkuð því að inn í það samtal vantar að við ræðum um það hvernig við mælum þjónustu og hvernig við mælum árangur. Ég vona að menn skilji þessi orð ekki sem svo að ég sé að mæla gegn umræðu um biðlista, hún er sannarlega þörf. En samhliða myndi ég vilja ræða um það hver þjónustan er sem við veitum og hver árangurinn er. Það er ekki síður mikilvæg umræða og þetta tvennt þyrfti að ræða samhliða.

Hversu mörg börn eru það á ári hverju sem fá aðstoð og hversu lengi þurftu þau að meðaltali að bíða? Biðlistarnir segja mikla sögu. Langir biðlistar eru alvarlegt vandamál, en það vantar í það samtal að við séum að ræða um þjónustuna, gæði hennar og aðgengi. Og erum við samhliða að ræða hvort það skiptir máli hvaða þættir heilbrigðiskerfisins það eru sem veita þjónustuna, hvort barnið sé alltaf í forgrunni í þeim ákvörðunum? Hvað t.d. með sálfræðinga sem starfa utan kerfis?

Ég myndi vilja fá skýrara svar varðandi þessa þætti: Hversu mörg börn munu fá sálfræðiþjónustu með niðurgreiðslum sjúkratrygginga? Ætlar ráðherra að beita sér þar? Þetta held ég að sé enn meira aðkallandi núna þegar skólaganga barna og ungmenna er í uppnámi vegna Covid og það eru vísbendingar um verri líðan. Það eru vísbendingar um kvíða og er ástæða til að ætla að verri líðan til skemmri tíma geti orðið til lengri tíma ef við grípum ekki inn í. Það er sálfræðiþjónusta á heilsugæslunni, hversu mörgum tímum eiga börn rétt á þar? Stendur sú þjónusta til boða alls staðar á landinu? Eru börn á landsbyggðinni jafn vel sett og börn í borginni? Og aftur kannski þessi lokaspurning: Hvers vegna er ekki búið að tryggja að öll börn fái niðurgreidda þjónustu sálfræðinga? Getum við treyst því að svo verði (Forseti hringir.) og að við komumst upp úr þeim hjólförum að vera eingöngu að ræða um heilsugæsluna þegar aðrar leiðir eru tækar (Forseti hringir.) og er börnunum til hagsbóta að líta á þær leiðir?

(Forseti (ÞorS): Enn minnir forseti á ræðutíma.)