biðlistar eftir úrræðum fyrir börn með geðheilbrigðisvandamál.
Virðulegur forseti. Ég þakka kærlega öllum þeim sem tóku þátt í þessari umræðu, sem hefur verið mjög gagnleg. Hún sýnir okkur að við hér á þingi ættum að geta leyst þessi mál farsællega einn, tveir og þrír eða á eins góðan hátt og hægt er miðað við aðstæður. Hún hefur líka sýnt okkur fram á að við erum eftir á í því að hugsa um landsbyggðina. Það kom fram hjá hv. þm. Guðjóni Brjánssyni hve ástandið getur verið slæmt þar. Það þarf geðheilbrigðisteymi í hvern landshluta og það þarf að virkja hlutina þannig að þjónustan komi til þeirra sem eru úti á landi svo að íbúar þar þurfi ekki alltaf, með mjög miklum kostnaði, að sækja þjónustu hingað í bæinn.
Það er annað í þessu sem við virðumst vera að gleyma, og kom líka upp í umræðu okkar í sambandi við Covid, og það er að það vantar sjúkrahús. Þar er líka flöskuháls, það vantar sérhannað geðsjúkrahús fyrir bæði börn og fullorðna. Við eigum ekki að standa hér eftir fimm eða tíu ár og segja: Við hefðum átt að byggja það fyrir löngu. Við eigum að fara í það strax.
Annað í þessu sem við verðum líka að átta okkur á og er grafalvarlegt mál er að í dag erum við að tala um að endurhæfa öryrkja, og stærstur hluti öryrkja er með geðræn vandamál, og hvar stöndum við eftir nokkur ár ef við ætlum enn að segja: Heyrðu, við þurfum að fara að endurhæfa öryrkja? Við eigum þá að vera í þeirri stöðu að við séum löngu búin að þessu. Við erum ekki með öryrkja, við erum komin með fólk sem líður vel og getur tekið þátt í samfélaginu þarna úti. Það er það sem við öll viljum.
Að lokum: Þegar talað er um að fólk sé komið í virka þjónustu hjá BUGL og það fær einn tíma í mánuði þá getur það ekki kallast full þjónustu ef allir eru óánægðir með hana, bæði barnið og fullorðni einstaklingurinn. (Forseti hringir.) Við verðum að tryggja það að hlustað verði á foreldrana og börnin og setja það í forgang að allir séu ánægðir með þessa þjónustu. Þannig náum við bestum árangri.