biðlistar eftir úrræðum fyrir börn með geðheilbrigðisvandamál.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir afar fróðlega og góða umræðu. Ég finn það í þessari umræðu að þingmenn brenna fyrir þessum málaflokki, sem er mjög mikilvægt. Mér finnst líka mikilvægur sá undirtónn sem ég heyri hjá öllum og það er að við þurfum að vera með snemmtæka íhlutun, að við þurfum að horfa á samfélagið og megum ekki bara vera á þeim enda þar sem þriðja stigs þjónustan er, þó að við þurfum auðvitað að tryggja að ekki sé óhófleg bið þar.
Við erum að vinna að innleiðingu geðræktar- og forvarnastarfs í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Það er vinna sem var sett í gang á grundvelli geðheilbrigðisstefnu sem Alþingi samþykkti. Það snýst í raun og veru um að samþætta öll þessi sjónarmið, þ.e. skólakerfið, heilbrigðisþjónustuna og félagsþjónustuna þannig að kerfin tali saman og að við séum að horfa á snemmtæka íhlutun.
Mín stefna sem heilbrigðisráðherra hefur verið sú að efla sálfræðiþjónustu og bæta aðgengi að henni úti um allt land. Til marks um það hafa geðheilsuteymi á landinu öllu það sem af er þessu ári sinnt rúmlega 2.600 einstaklingum, fólki sem ella hefði þurft að bíða eftir annars konar þjónustu, þurft að fara í bæinn til að tala við geðlækni eða bíða annars staðar. Við erum að koma til móts við þetta með gríðarlega afgerandi hætti. Við höfum fjölgað sálfræðingum í heilsugæslunni, við höfum tvöfaldað þann fjölda á þeim þremur árum sem þessi ríkisstjórn hefur verið við störf. Núna eru þessir sálfræðingar 66 um landið allt því að við leggjum nefnilega áherslu á jafnt aðgengi óháð búsetu. Þess vegna erum við með 540 milljónir í fjárlagafrumvarpinu núna til að tryggja aðgengi óháð búsetu.
Ég vildi, virðulegur forseti, að ég hefði tíma til að tala um fleira hér en ég vil taka undir sjónarmið sem lúta að því að fara í úttekt á geðheilbrigðisþjónustunni. Ég vil líka taka undir þau sjónarmið sem lúta að því að kerfin tali betur saman. (Forseti hringir.) Með því að efla Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu stuðlum við að jafnri þjónustu úti um land og það er eitt af mínum megináherslumálum. (Forseti hringir.) Hv. þm. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir nefndi hér sálfræðinga utan kerfisins, eins og oft er rætt. Þar hefur þingið tekið sína ákvörðun um að ráðherra sé heimilt (Forseti hringir.) að semja við þá stétt og mér finnst það vera eitthvað sem við þurfum að ræða hér á vettvangi Alþingis.