um úttekt á starfsemi Skattsins við framkvæmd tollalaga.
Virðulegur forseti. Bara nokkur orð um þessa skýrslubeiðni sem við þingmenn Miðflokksins leggjum fram. Með skýrslubeiðninni er óskað eftir því að Ríkisendurskoðun taki saman skýrslu um verklag skattsins við framkvæmd og eftirlit samkvæmt tollalögum og tollasamningum á málefnasviði landbúnaðarvara. Atriðin sem við óskum eftir að verði sérstaklega skoðuð eru tollafgreiðsla landbúnaðarvara, þróun á umfangi innflutnings landbúnaðarvara. Það er samanburður á tölum um útflutning búvara frá löndum ESB og Noregi og innlendum tölum um innflutning frá sömu löndum og síðan athugun á því hvort tollnúmerum á sviði landbúnaðarvara og skilgreiningu vara sem undir hvert númer falla hefur verið breytt frá stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Ég vildi bara nefna þetta hér áður en greidd eru atkvæði um hvort leyfa skuli þessa skýrslubeiðni þannig að það liggi fyrir.