um úttekt á starfsemi Skattsins við framkvæmd tollalaga.
Virðulegi forseti. Mér finnst sjálfsagt að verða við þessari skýrslubeiðni. Ég vil þó taka það fram að það hefur staðið yfir vinna sem snýst um að skoða mörg þessara sömu atriða. Starfshópur sem skilaði af sér nú snemma í októbermánuði tók saman nokkrar meginniðurstöður sem gengu hingað til þingsins og eftir að sá starfshópur skilaði af sér tók ég ákvörðun um að halda vinnunni áfram, að það væri nauðsynlegt að skoða nokkra þætti betur. Það fellur ágætlega að þessari beiðni þannig að mér finnst ekki ástæða til annars en að verða við þessari beiðni og þá fer skýrslan bara í aðeins formlegri farveg og við erum sammála flytjendum þessarar tillögu um að ástæða er til að upplýsa aðeins betur og veita meira gagnsæi um framkvæmd þeirra samninga sem eru í gildi.