151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

um úttekt á starfsemi Skattsins við framkvæmd tollalaga.

225. mál
[14:04]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Já, ég vil eindregið taka undir þessa skýrslubeiðni. Ég held að hún sé mikilvæg til þess að fá einmitt heildarmyndina þegar kemur að þessum málum og undirstrikar um leið mikilvægt aðhalds- og eftirlitshlutverk Alþingis með stjórnvöldum. Ég styð þessa skýrslubeiðni.