151. löggjafarþing — 16. fundur,  5. nóv. 2020.

þingsköp Alþingis.

8. mál
[14:05]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við fjöllum hér um ágætisfrumvarp til að festa í sessi þá framkvæmd sem verið hefur á fundum fastanefnda Alþingis meðan kórónuveirufaraldurinn hefur staðið yfir. Sú breytingartillaga sem ég hef lagt fram felst í því að við stígum eitt skref til baka og ekki sé bætt við að þessu sinni heimild til að sækja fjarfund af heilsufarsástæðum þingmannsins sjálfs eða aðstandenda hans. Þetta er ekki lagt til af einhverri sérstakri umhyggju fyrir heilbrigði okkar þingmanna heldur vegna þess að ég tel eðlilegt að þingið sýni gott fordæmi og sendi ekki þau skilaboð út í samfélagið að veikindaréttur einstaklinga eða réttindi til orlofs vegna veikinda barna sé eitthvað sem hægt sé að semja um í hverju tilviki fyrir sig heldur sé þetta alger réttur. Það að við gefum þetta frá okkur af fúsum og frjálsum vilja eru ekki góð skilaboð út í atvinnulífið.