151. löggjafarþing — 17. fundur,  5. nóv. 2020.

aðgerðir í þágu sveitarfélaga vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

43. mál
[16:21]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Í þessari umræðu allri þurfum við að taka mið af því að rekstur sveitarfélaga er með öðrum hætti en vöxtur ríkisins. Þess vegna er það tómt mál að tala um, finnst mér, að segja við sveitarfélögin: Þið verðið bara að skuldsetja ykkur eins og ríkið, þið getið bara gert það eins og ríkið. Þið verðið bara að taka á ykkur þessa niðursveiflu og þessa fordæmalausu tíma og þessa miklu atvinnukreppu með því að taka lán. En það þarf auðvitað að hugsa um það til lengri tíma hvernig sveitarfélögin ætla síðan að tækla þá stöðu að vera orðin mjög skuldsett í þessari miklu niðursveiflu. Og aftur, þau eru rekin eins og fyrirtæki en ekki eins og ríkissjóður. Það er mjög mikilvægt að hafa það í huga.

Forseti. Ég man ekki alveg hver spurningin var. Kannski var engin spurning hjá hv. þingmanni í þessu seinna andsvari, sem gefur mér þá frjálsar hendur. (Gripið fram í.)

Annars vegar segir hæstv. ráðherra sveitarstjórnarmála: Sveitarfélögin þurfa bara að skuldsetja sig. Við vitum að þau fá ekki sömu kjör og ríkið þannig að ríkið ætti að vera með einhverja milligöngu um bætt lánakjör. Hins vegar segir hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra: Ef þið eruð eitthvað að kvarta undan þessari stöðu og ætlið ekki að tækla þetta sjálf þá verðum við bara að endurskoða hvernig tekjurnar renna til ykkur. Kannski ættum við bara að skammta ykkur úr hnefa, eins og gert er í nágrannalöndunum.

Ekki er þó annar samanburður við nágrannalöndin þar undir.

Þannig að þetta er skilningsleysi af hálfu ríkisstjórnarinnar á þeim mikilvægu verkefnum sem sveitarfélögin þurfa að sinna. Það verður að koma til móts við þau í niðursveiflu, sem er söguleg. Þá þarf að gera óvanalega hluti.