aðgerðir í þágu sveitarfélaga vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Varðandi Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu þekki ég þá orðræðu alveg ágætlega og hef átt samtal við þau þó að ég sitji ekki í fjárlaganefnd og viti ekki nákvæmlega hvað hafi farið fram á þeim fundi. Það sætir reyndar furðu hvað hefur verið sett mikil hagræðingarkrafa á þau lágu daggjöld sem ætlað er að standa undir þjónustunni. Ég hygg að hv. fjárlaganefnd þurfi að fara vel yfir það mál. Í orðræðu minni var ég ekkert endilega að dásama þá samninga. Ég var bara að segja að mér finnst óþarfi að hafa eitthvert millistykki, nógu flóknir og erfiðir eru þessir samningar fyrir. Mér finnst óþarfi að sveitarfélögin séu einhvern veginn millistykki. Þetta hefur auðvitað verið með þeim hætti að sveitarfélögin hafa verið að taka hluta af reikningnum. Það er kannski það sem ég er að segja. Það er óeðlilegt því að verkefnið á í mínum huga, og mér finnst það alveg skýrt í lögunum, að vera á hendi ríkisins. Þetta er þá til að stækka fílinn í staðinn fyrir að taka svolítið bita af honum, gera þetta hreinna. Hvað er það sem sveitarfélögin gera hér í þessu landi og hvað er það sem ríkið gerir? Reynum að útrýma gráu svæðunum. Þetta var kannski það sem ég var að reyna að koma inn á.
Þegar kemur að sjálfstæði sveitarfélaganna, sem ég var að tala fyrir, er spurt: Bíddu, en hvað með lögþvingunina? Það er auðvitað risastór spurning og ég skil alveg sjónarmið hv. þingmanns hvað það varðar. Hin spurningin er: Hvað er sveitarfélag? Í þeirri þróun sem hefur átt sér stað á síðustu áratugum hefur verkefnum sveitarfélaganna verið að fjölga og verið ýtt enn frekar undir nærþjónustu. Ég hef sagt að kalt á litið þurfum við annaðhvort að fara í sameiningar á sveitarfélögum þannig að þau verði líkari rekstrareiningar, líkari að stærð og umfangi, eða að fara í þriðja stjórnsýslustig. Það eru einu tvær lausnirnar sem ég hef séð til þess að láta þessa hluti hreinlega ganga upp. Ég get kannski útskýrt það örlítið betur í næsta andsvari.