meðalhóf í sóttvarnaaðgerðum.
Virðulegi forseti. Mannréttindi, ferðafrelsi, atvinnufrelsi og einstaklingsfrelsi hefur verið skert á fordæma- og fyrirvaralausan hátt hérlendis síðastliðna níu mánuði og yfirstandandi aðgerðir, sem eru þær hörðustu hingað til með viðamiklum og íþyngjandi lokunum, auk grímuskyldu alveg niður á grunnskólastig, hafa valdið landsmönnum töluverðum miska. Nú berast ánægjulegar fréttir um þróun bóluefnis gegn Covid-19. Virkni lyfsins á þessum stigum rannsókna er afburðagóð og eins virðist styttast í að sjálf bólusetningin verði hafin á Evrópusvæðinu. En í ljósi þess að um er að ræða flóknar forsendur og að lyfjaþróun er tilraunakennd framkvæmd getur eins og gefur að skilja brugðið til beggja vona í þessum efnum. Jafnvel þó að allt gangi meira og minna að óskum sjáum við fram á að bróðurparturinn af næsta ári fari í að bíða eftir lyfinu og hefja svo nokkuð tímafrekt bólusetningarstarf. Því eru yfirgnæfandi líkur á að við komum til með að sjá fleiri Covid-bylgjur hérlendis á næstu mánuðum.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hann líti svo á að meðalhófs hafi verið gætt í notkun sóttvarnaheimilda í yfirstandandi hertum aðgerðum eða hvort ráðherra líti svo á að frelsi hafi verið takmarkað umfram það sem aðstæður gáfu tilefni til.
Þá vil ég spyrja hæstv. ráðherra, í ljósi þeirra ummæla sem stjórnarliðar flokks hans hafa viðhaft síðustu daga í ræðu og riti og eins í ljósi þeirra ummæla sem ráðherra sjálfur lét falla í Kastljóssviðtali á þriðjudagskvöld, hvort hann hyggist beita sér gegn því innan ríkisstjórnarinnar að aftur verði gripið til jafn harðra sóttvarnaaðgerða og nú eru í gildi. Og ef svo er, út frá hvaða forsendum myndi ráðherra gera það?