meðalhóf í sóttvarnaaðgerðum.
Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að segja að árangur okkar Íslendinga í því að fást við þessa veiru, útbreiðslu hennar, hefur vakið mikla athygli og hann er almennt séð mjög góður. Við erum að glíma núna við seinni stóru bylgjuna og það má halda því fram að hún eigi rætur sínar að rekja til þess að við slökuðum aftur á sóttvörnum. En ég ætla ekki að þykjast geta fellt dóma um að það hefði mátt fara öðruvísi að eða að ef einhverjar aðrar ákvarðanir hefðu verið teknar væri fyrirsjáanlegt að mál hefðu þróast á annan og betri veg.
Hér er spurt um nokkur mjög stór mál. Í fyrsta lagi er ég spurður að því hvort meðalhófs hafi verið gætt. Það er ekki auðvelt að kveða upp úr með það nákvæmlega hvort meðalhófs hafi nákvæmlega verið gætt í hverju og einu tilviki, við hverja og eina ákvörðun. En ég hef hins vegar staðið nokkuð nærri þessum ákvörðunum, verandi í ríkisstjórn, og ég hef orðið var við það að menn eru mjög að passa sig á því, við útfærslu reglna á þessu sviði, að gæta meðalhófs. Það má síðan alltaf hafa skoðun á því hvort menn séu að dansa á línunni. Ég get alveg sagt fyrir mitt leyti að stundum hefur manni fundist að hinar tölulegu staðreyndir sem við höfum í höndunum hverju sinni gefi kannski ekki tilefni til að ganga alveg jafn langt og við erum að gera á einstaka sviðum. Það liggur t.d. fyrir að við höfum verið að stöðva atvinnustarfsemi þar sem einstaklingsþjónusta er undir, snyrtistofur, hárgreiðslustofur og slíkir aðilar hafa þurft að loka starfsemi sinni. Það er mjög fátítt að það sé gert í öðrum löndum. Það er nokkuð alvarlegt að gera það vegna þess að þarna er auðvitað um lífsviðurværi fólks að ræða og við höfum þurft að bregðast við því.