151. löggjafarþing — 18. fundur,  12. nóv. 2020.

meðalhóf í sóttvarnaaðgerðum.

[11:06]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P):

Forseti. Ég þakka ráðherra svörin. Ríkisstjórnin, sóttvarnayfirvöld og við öll höfum eðlilega og endurtekið kallað eftir samstöðu og samvinnu þjóðarinnar í baráttunni við veiruna. Það er því ósköp eðlilegt að hæstv. ráðherra sé spurður um samstöðu stjórnarinnar um þær aðgerðir sem framkvæmdar eru. Samflokksfólk ráðherra hefur upp á síðkastið látið þung orð falla um sóttvarnaaðgerðir og einn hv. þingmaður hefur sett aðgerðir ríkisstjórnarinnar í samhengi við alræði og sagst vera hættur meðvirkni með eigin ríkisstjórn. Álítur hæstv. ráðherra ekki að þingflokkurinn þurfi að útkljá mál sem þessi innan eigin raða áður en ákvarðanir um jafn alvarleg inngrip í líf fólks eru teknar? Hefur hann engar áhyggjur af því að vantraustsyfirlýsingar á ríkisstjórnina frá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins geti ýtt undir rof á samstöðu og jafnvel andspyrnu við sóttvarnaaðgerðir í samfélaginu?