þjónusta sérgreinalækna á landsbyggðinni.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur fyrir að hefja máls á þessu mikilvæga máli. Nýlegar tölur sýna að fólk á landsbyggðinni er ólíklegra til að sækja sér þjónustu til sérfræðilækna en fólk á höfuðborgarsvæðinu. Íbúar á Austurlandi og Vestfjörðum fóru sjaldnast yfir árið, eða um 0,6 sinnum, á meðan íbúar á höfuðborgarsvæðinu fóru nærri tvisvar sinnum. Það væri freistandi að ætla að heilsa íbúa vestra og eystra væri svona miklu betri, en það er líklega ekki skýringin. Nei, líklega liggur skýringin í því að það er alls ekki jafnræði í aðgengi að sérfræðiþjónustu á Íslandi. Það er morgunljóst að innanlandsflug skiptir máli fyrir þessi landsvæði. Tölurnar sem liggja fyrir eru síðan 2017, en það verður fróðlegt að sjá hvernig tölurnar verða fyrir árið í ár þegar sá möguleiki að fljúga innan lands fer að verða munaður en ekki áætlun.
Við búum við þá staðreynd, líkt og margir íbúar á landsbyggðinni, að við þurfum að sækja sérfræðiþjónustu, sem og almenna heilbrigðisþjónustu, til Reykjavíkur. Konur þurfa að fara suður til að fæða og fólk þarf að fara til Reykjavíkur m.a. í krabbameinsmeðferðir. Ár frá ári eykst það að við á landsbyggðinni þurfum að sækja í heilbrigðisþjónustu sem er í nokkur hundruð kílómetra fjarlægð frá heimili okkar. Það er að verða himinn og haf á milli þess kostnaðar sem íbúar landsbyggðarinnar og þess sem íbúar höfuðborgarinnar þurfa að bera af þeirri þjónustu, því að taka þarf inn í jöfnuna t.d. vinnutap og húsnæðiskostnað. Flugið er mikilvægt til að stytta ferðatímann. Það eru ekki allir sem treysta sér í langar bílferðir þegar heilsan er ekki eins og best verður á kosið. Í stefnu fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 segir að bregðast þurfi við þessum aðstöðumun. Þar er líka lögð áhersla á að tryggja aðgengi landsbyggðarinnar að sérfræðiþjónustu. Einnig er talað um fjarlækningar í þessu sambandi. Því vil ég hvetja hæstv. heilbrigðisráðherra og stjórnvöld til að vinna að þeirri stefnu og þeim markmiðum sem þarna koma fram.