151. löggjafarþing — 18. fundur,  12. nóv. 2020.

þjónusta sérgreinalækna á landsbyggðinni.

[12:02]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir góða umræðu hér í dag og vonandi sjáum við þann góða vilja sem fram kom í umræðunni verða að raunveruleika. Samkeppnisstaða landshlutanna er því miður skökk á mörgum sviðum og aðgengi að heilbrigðisþjónustu er eitt þeirra. Sem dæmi um aðstöðumun þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðisins þegar kemur að aðgengi að sérfræðingum, má nefna að það er í raun og veru nánast ómögulegt fyrir fjölskyldur og einstaklinga sem búa við langvarandi heilsufarsvandamál og þurfa reglulega á þjónustu sérgreinalækna að halda, að búa utan höfuðborgarsvæðisins eða í kringum Akureyri. Þetta verður líka til þess, eins og fram kom áðan, að íbúar utan höfuðborgarsvæðisins leita í mun minna mæli til sérgreinalækna en höfuðborgarbúar. Eins og hv. þm. Guðjón S. Brjánsson kom inn á í ræðu sinni áðan, með leyfi forseta:

„… og ef þeir gera svo, þá þurfa þeir oftast að koma á læknastofu í Reykjavík. Það er auðvitað þægilegast fyrir sérfræðinginn, en það er dýrast og óþægilegast fyrir sjúklinginn. Þannig á þetta auðvitað ekki að vera.“ — Þjónustuna heim, herra forseti.

Ég get tekið undir það sem kom fram hjá hæstv. ráðherra varðandi mikilvægi þess að heilbrigðisumdæmin skilgreini hvaða þjónustu þurfi að bjóða upp á og aukningu hlutverks þeirra í þeirri þjónustu. Þannig færum við þjónustuna að einhverju leyti heim. Hins vegar verðum við að tryggja að heilbrigðisumdæmin hafi fjármagn til að sinna því hlutverki sínu. Ég óttast að það sé ekki gert, a.m.k. ekki miðað við hvernig staða þjónustunnar er í dag.

Herra forseti. Þetta á auðvitað ekki að vera svona. Með þeim vilja sem endurspeglaðist í ræðunum í dag hljótum við að geta tekið höndum saman og breytt þessu. Ég hvet hæstv. heilbrigðisráðherra að lokum til að nýta þann góða vilja sem hér birtist til góðra verka og breyta þessu og að við tryggjum saman fjármagnið í verkefnin. Til erum við.