aðgengi einstaklinga sem ferðast til Íslands að þungunarrofi.
Virðulegi forseti. Hér er rædd tillaga til þingsályktunar um aðgengi einstaklinga sem ferðast til Íslands að þungunarrofi. Ég hef töluvert rætt um þessa þingsályktunartillögu hér í þinginu og skrifaði grein, eins og kom fram af hálfu hv. framsögumanns Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur í framsögu hennar áðan. Ég þarf auðvitað ekki að endurtaka það sem ég hef sagt áður en mér finnst bara mjög mikilvægt að fram komi, virðulegur forseti, að þessi þingsályktunartillaga beinist fyrst og fremst beinist að heilbrigðisráðherra og því að hún tryggi aðgengi einstaklinga, sem ferðast hingað til lands í því skyni að gangast undir fóstureyðingu, að viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Um það snýst þessi tillaga fyrst og fremst. Við þurfum að horfa á hana í því ljósi sem staða heilbrigðiskerfisins á Íslandi er í í dag og í því ljósi sem staða landsins er í í dag þegar hér ríkir neyðarástand í heilbrigðismálum og spítalinn sjálfur, Landspítalinn, er á neyðarstigi og heimurinn allur er undir. Þá kemur þessi tillaga fram um að hingað skuli beina fólki til fóstureyðingar. Það er auðvitað þyngra en tárum taki.
Þrátt fyrir örugglega góðan vilja þeirra sem flytja þessa tillögu, vegna þess að ég held að það sé nú þannig með okkur mannfólkið að við séum að upplagi gott fólk sem viljum öðrum vel, þá er það þannig þegar við viljum gera öðrum vel og láta heilbrigðiskerfið sjá um það fyrir okkur að því eru takmörk sett, alla vega að því leyti sem kerfið sjálft takmarkar.
Þessi tillaga beinist fyrst og fremst að pólskum og maltneskum konum. Í Póllandi búa rúmlega 38 milljónir manna og á Möltu um 400.000. En auk þess segir í tillögunni að óskandi væri að við gætum líka veitt þjónustu konum frá öðrum löndum en þarna eru tiltekin, sem búi við samsvarandi skerðingar á fóstureyðingum og löggjöfin í Póllandi setur. Ég veit ekki hversu mörg lönd þetta eru vegna þess að ég hef ekki kynnt mér fóstureyðingarlöggjöf allra landa. Ég kynntist íslensku fóstureyðingarlöggjöfinni í vetur og var ósáttur við þá niðurstöðu sem samþykkt var í þinginu og hef í sjálfu sér ekki neitt meira um það að segja á þessu stigi, enda er sú tillaga og þau lög ekki hér til umræðu.
Það er ekki gert ráð fyrir neinum ákveðnum fjölda einstaklinga í þessarar þingsályktunartillögu. Framsögumaður var spurð að því áðan hvað hún gerði ráð fyrir að margir einstaklingar kæmu hingað í þessum erindagjörðum og hún vísaði því á heilbrigðisráðherra. Það væri hennar mál að taka á því. Þetta er auðvitað miklu alvarlegra mál en það. Hér er lögð fram þingsályktunartillaga sem nánast einn þriðji þingmanna skrifar undir og það er hvorki talað um hversu margir einstaklingar gætu komið né gert ráð fyrir því hvað það kosti. Þá verður maður að geta sér til um það, virðulegur forseti, hvað þeir eru margir. Einu tölurnar sem ég hef eru úr útvarpsþætti sem fjallaði um þessa tillögu. Þar sagði pólskur blaðamaður, Renata Kim, frá því að í Póllandi færu fram u.þ.b. 150.000 ólöglegar fóstureyðingar á ári. Það kom einnig fram að einhver hjálparsamtök, sem ekki voru nafngreind, teldu að fjöldinn væri allt að 200.000 á ári. Síðan var talað um maltneskar konur og konur frá öðrum löndum sem búa við sömu stöðu og þær.
Ég veit ekki, virðulegur forseti, hvað ég á að giska á en ég þarf auðvitað ekki að reikna það út fyrir ykkur, ágætu þingmenn, hvers lags álag það væri á að íslenska heilbrigðiskerfið ef bara brot, brotabrot af þessum einstaklingum, kæmi hingað. Það er það sem ég er að hugsa um á þessari stundu. Þessi forgangstillaga hv. þm. Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur hefði getað fjallað um stöðu íslenskra heimila. Hún fær ekki aðra þingsályktunartillögu á næstunni en hún kaus að fara þessa leið. Ef hún hefði hugsað út í það hvað þetta kostar íslenskt heilbrigðiskerfi er ég ekki viss um að tillagan hefði verið lögð fram, vegna þess að hún snýst fyrst og fremst um kostnað. (Gripið fram í: Nei.) Góðmennskan fylgir með og hún er falleg og hún verður aldrei metin að verðleikum, aldrei nóg alla vega. Ég tek algerlega undir þá hugsun að við þurfum að hugsa vel til allra og gera allt sem við getum fyrir alla. En við getum ekki gert allt fyrir alla og látið heilbrigðiskerfið sjá um það fyrir okkur. Það er bara útilokað, algjörlega útilokað.
Ég ætla ekki að fara út í neinar reikningskúnstir í þessum ræðustól. Ég hef mjög takmarkaðan tíma. Ég er bara að vekja athygli á því hvað flutningsmenn eru að leggja á heilbrigðiskerfið á Íslandi. Ég er spyrja að því hvort þeir hafi sest niður með yfirmönnum Landspítalans og spurt þá hvernig þeir tækju því að Landspítalinn tæki við, segjum brotabroti, 10%, af þessum tugum þúsunda kvenna, í fóstureyðingu á Íslandi. Hvernig myndi samræmast þeirri deild Landspítalans þar sem nú þegar eru framkvæmdar 1.000 fóstureyðingar á ári, fimm á dag, alla virka daga ársins? Mér og mörgum öðrum finnst það of mikið og þá er ég ekkert að setja mig í spor þeirra sem þar eru eða meta það á neinn hátt. Ég er bara að tala um líf. Það er það sem snýr að mér í þessu.
Þegar við leggjum fram svona tillögur verðum við að meta kostnaðinn sem felst í þeim. Það er hægt að koma með alls konar tillögur um hvað sem mönnum dettur í hug ef kostnaðurinn skiptir engu máli.
Virðulegi forseti. Ég verð að segja að þessi tillaga kemur fram á ótrúlega röngum tíma fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi, fyrir fólk á Íslandi sem situr og bíður eftir vinnunni sinni, fyrir fólk á Íslandi sem sér ekki bjarta framtíð í augnablikinu. En framtíðin verður björt. Ég lofa því. Við lofum því öll. Við vonum það öll.
Nú fer þessi tillaga væntanlega til hv. velferðarnefndar. Mér finnst mjög mikilvægt að hún fái skjóta afgreiðslu í nefndinni svo hún geti komið fyrir þingið aftur og um hana verði greidd atkvæði. Það er mjög mikilvægt að skýr vilji þingheims komi fram um það hvort flytja eigi tugþúsundir útlendinga hingað og hlaða á heilbrigðiskerfið. Það er mjög mikilvægt fyrir fólkið í landinu, fyrir samfélagið sem berst í bökkum á þessum tímum, að vita hvort þingmenn í þessum sal ætli að leggja slíkar byrðar á heilbrigðiskerfið að það muni jafnvel ekki rísa undir því. Í mínum huga er heilbrigðiskerfi á Íslandi með því albesta sem gerist í heiminum en það er agnarsmátt ef bara brot af þeim einstaklingum sem hér er verið að tala um koma hingað. Ég get hugsað til allra þeirra með hlýju en ég mun aldrei geta leyst úr málum þeirra og alls ekki málum einstaklinga og kvenna allra landa, eins og hér er talað um.