151. löggjafarþing — 18. fundur,  12. nóv. 2020.

aðgengi einstaklinga sem ferðast til Íslands að þungunarrofi.

239. mál
[14:08]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að fara yfir þetta. Það er bara ágætt og nauðsynlegt í þessari umræðu, þ.e. með hvaða hætti sjúkratryggingakortið kemur að þessum aðgerðum og aðgerðum almennt. Eins og hv. þingmaður nefndi réttilega þá er það sjúklingurinn sem leggur út fyrir upphæðinni og óskar síðan eftir endurgreiðslu í viðkomandi heimalandi. Ég held að það sé einmitt veruleg óvissa með það með hvaða hætti pólsk stjórnvöld myndu bregðast við því. Við höfum náttúrlega séð að stjórnarfarið í Póllandi er með sérstökum hætti um þessar mundir og hefur verið. Ég sé ekki fyrir mér að þessar endurgreiðslur myndu ganga hratt og vel fyrir sig. Þetta er nokkuð sem þarf að sjálfsögðu að fara mjög vandlega yfir.

Ég tel eðlilegt að við vinnu nefndarinnar með tillöguna verði þessir hlutir rannsakaðir mjög ítarlega vegna þess að slíkar aðgerðir eru ólöglegar í Póllandi og við vitum ekkert fyrir fram með hvaða hætti stjórnvöld munu bregðast við þó að þeim beri að greiða. Við getum ekkert sagt til um hvort þau geri það. Það er alveg ljóst að þetta þarf að liggja nokkuð skýrt fyrir vegna þess að við erum náttúrlega tala hér um verulegan kostnað og það er að mínu viti engan veginn á ríkissjóð leggjandi í ljósi þeirra aðstæðna sem við höfum verið í undanfarnar vikur og mánuði. Skuldasöfnun ríkissjóðs er með þeim hætti að það er ekki á það bætandi.