aðgengi einstaklinga sem ferðast til Íslands að þungunarrofi.
Virðulegi forseti. Mér þykir leitt að hafa valdið hv. þingmanni svona miklu uppnámi. En ég stend samt við það að það sé óheiðarlegt að koma hingað upp og tala um mögulegan kostnað af þessari aðgerð sem ástæðu fyrir andstöðu við málið. Ég tel það ekki vera ástæðuna fyrir andstöðunni við það. Ef hv. þingmaður væri sammála mér í því að friðhelgi einstaklinga, mannhelgi kvenna og réttur þeirra til yfirráða yfir eigin líkama væru grundvallarmannréttindi sem okkur bæri að standa vörð um og standa með, þá væri mögulegur kostnaður af því alls ekki það sem stæði hv. þingmanni fyrir þrifum. Rökin, ástæðurnar, hvatinn að baki því að hv. þingmenn standa gegn þessari tillögu er einfaldlega það að þeir eru andsnúnir þungunarrofi. Kostnaðurinn er mögulega til staðar, ég hef ekki séð haldbærar sannanir fyrir því, en hann er átylla til að geta komið með einhver rök önnur en þau að konur eigi ekki að fá að ráða yfir eigin líkama. Það er nú heili óheiðarleikinn sem ég var að benda á.
Virðulegi forseti. Mér finnst heiðarlegra að hv. þingmaður viðurkenni að hann sé andsnúinn þungunarrofi og þess vegna vilji hann ekki leyfa pólskum konum að koma hingað í þungunarrof. Mér þætti það heiðarlegra.