151. löggjafarþing — 18. fundur,  12. nóv. 2020.

aðgengi einstaklinga sem ferðast til Íslands að þungunarrofi.

239. mál
[15:50]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég verð bara að segja og ítreka það: Ég styð konur í Póllandi 100% gegn þeirri löggjöf sem þar er. Mér finnst hún algjörlega út í hött og finnst hún fara algerlega aftur í fornöld. Ég styð konur algjörlega 100% ef þær þurfa að fara í fóstureyðingu þegar óttast er um líf þeirra, barnið þeirra, ef það er við aðstæður og innan þeirra marka sem lögin leyfa. En ég get alveg verið á móti því við hvaða vikur við eigum að miða. Það hefur ekki ekki áhrif á að ég megi ekki hafa þá skoðun á því þó að ég hafi hana ekki út af trúarbrögðum. Það eru engin trúarbrögð í þessu samhengi, þetta er bara mín tilfinning og mín skoðun. Það er það sem ég hef verið að viðra hérna í dag. Ég segi fyrir mitt leyti að þetta hefur að mörgu leyti verið mjög góð umræða. Kannski er það sorglegasta í þessu hversu fá við erum sem tökum þátt í henni vegna þess að ég held að við hefðum þurft að fá fleiri í umræðuna. Við hefðum þurft að ræða þetta betur.

Staða kvenna í Póllandi og annars staðar í heiminum sem eru í svipaðri stöðu er skelfileg, sem engin kona á að þurfa að vera í. Við eigum að vera komnir langt út fyrir þann ramma, en hversu langt við eigum að fara getum við deilt um. Ég held að við getum verið alveg sammála um að vera ósammála á þeim vettvangi.