151. löggjafarþing — 18. fundur,  12. nóv. 2020.

endurskoðun á lagaumhverfi fyrir smávirkjanir.

238. mál
[18:29]
Horfa

Flm. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni fyrir andsvarið. Smávirkjanir eru skilgreindar undir 10 MW og eins og hér segir er ráðherra falið að endurskoða lög og reglugerðir. Í þessari tillögu er ekkert um það og ekkert mat lagt á þessar mismunandi stærðir, hvort við erum að tala um virkjanir undir 200 kW eða hvort endirinn verði sá, ef farið verður út í þetta, að kerfið verði einfaldara fyrir virkjanir sem eru 200 kW eða undir 500. Það er ekki talað um það heldur þessa skilgreiningu á smávirkjunum. Við erum ekki að leggja mat á það hvort ferlið þurfi að vera einfaldara fyrir þessar, hvort við þurfum mismikla einföldun, ég held að það þurfi bara að einfalda allt kerfið. En ég er alveg sammála því að auðvitað ætti það að vera einfaldast í flokki C, undir 200 kW. En við erum bara með þessa skilgreiningu og tökum þetta ekki fyrir í þessari tillögu.